Arnar M.

30.01.2008 00:56:55 / addari

Life Is Like A Boner, Long And Hard

Jæja, góða kvöldið

Held að þetta sé í fyrsta skipti í svona 3 ár sem að það koma 2 færslur á 2 dögum sko, þannig að það er eins gott fyrir ykkur að passa ykkur því að ég er á eldi. ;D

Skellti mér í bíó í gærkvöldi á Death At A Funeral. Vissi eiginlega ekki alveg hvað ég var að fara útí þegar ég settist niður í sætið annað en það að þetta væri bresk kómedía. Ekki byrjaði það nú vel, kom ein af þessum löngu byrjunum þar sem að það geriast ekki neitt nema að það er verið að sýna einhver nöfn... Þoli það ekki. Maður er búinn að horfa á svona 5 trailera og svo loksins þegar það er búið að slökkva öll ljós og allt sound komið í botn þá koma einhverjar 5 mínútur af ekki neinu !!! That really grinds my gears. En ok, eftir að ég var búinn að jafna mig á þessu þá held ég að það sé bara langt síðan að ég hafi hlegið svona mikið í bíói í langan tíma. Það var ekki bara það að myndin væri fyndin, heldur var einhver maður sem sat fyrir ofan mig sem var með ein alfyndnasta hlátur sem að ég hef á ævi minni heyrt og lá allir salurinn í kasti bara við það. Var samt farið að gruna að bíóstjórinn hehe ef það er til hafi borgað þessum manni til að koma í bíó og halda uppi stemmningunni í salnum. Ekki vitlaus hugmynd allavea.

En svo gengur lífið bara sinn vanagang hérna á Akureyri og er svona komin ágætis rútína á þetta allt saman hjá mér fyrir utan það að vaskurinn er ennþá stútfullur af óhreinum diskum og glösum. Er alvarlega farinn að íhuga að fara að fjárfesta í pappaglösum og diskum, gæti verið svona skemmtileg tilbreyting hehe.

En ég kveð að sinni og aðeins eitt að segja þá. Áfram Valur !!!

LCD Soundsystem - New York I Love You, But You're Bringing Me Down

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 18:47:19 / addari

Chuck Norris doesn't sleep, He waits

Jæja þá er maður loksins kominn með netið hérna og getur farið að hafa samband við umheiminn ;D Búið að vera brjálað að gera hjá mér í vinnunni og á æfingum og hefur heimilishaldið aðeins fengið að kenna á því. Vaskurinn fullur af diskum og er ég farinn að nota bollana til að drekka úr því að öll glösin eru óhrein hehe, er svona eiginlega að bíða eftir heimsóknum svo að einhver geti tekið þetta að sér.

Var leikur hjá okkur í gær sem að mér tókst að slasa mig fyrir, tognaði aðeins aftaní læri og þurfti að sitja uppí stúku í Boganum, sem er ekki heilbrigt fyrir mann sem á ekki góðan Kraft galla og kuldaskó en ég lifði það þó af.

Annars líkar mér lífið bara ágætlega hérna fyrir norðan, maður er aðeins farinn að venjast öðru loftslagi og því að labba og keyra upp svakalegar brekkur. Var með bílaleigubíl um daginn en nú er hann horfinn og þá er það bara að halda áfram að labba og styrkja rassvöðvana aðeins, ekki að það sé einhver þörf á því en alltaf má eitthvað bæta ;D

En núna ætla ég semsagt að setja þetta blogg aftur á og verður alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast hérna á síðunni hjá mér og hvet ég ykkur bara til að fylgjast með.

Hljómsveit Dagsins - The National


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 02:51:55 / addari

New Year

Sæl veriði og Gleðilegt nýtt ár ;D

Nýtt ár komið og margt nýtt að fara að gerast, Er að fara að flytja til Akureyrar eftir svona viku eða svo með allt mitt hafurtask, sem er ein sæng, playstation og slatti af dvd myndum :D Fer á morgun að skoða íbúðina sem ég verð í og kikja á nokkar æfingar með KA. Svo fer þetta allt saman að rúlla í gang.

En vildi bara svona aðeins láta vita af mér hérna á nýju ári og ætla ég að vera duglegur að blogga þegar ég er búinn að koma mér fyrir og fá netið og nýja tölvu og allan pakkann :D

Hérna i lokin kemur svo mynd af mér þar sem ég er að tæma Holland Casinoið í haust, Hef ég heyrt að orðið á götunni sé að ég sé kominn með nýtt nickname og er það Addy Ocean. Sel það ekki dýrara en ég keypti það :D

Lög Færslunnar:

Arcade Fire - Haiti

Kings Of Leon - Fans

Radiohead - All I Need

Justin Timberlake - Until The End Of Time

The Killers - For Reasons Unknown

Mugison - Mugiboogie

Smith - Baby It's You

Daft Punk - Something About Us


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 22:29:48 / addari

gjugg.is

gjugg.is
 
Allir að kíkja inn og láta alla vita af þessu. Heitasta netverslunin í dag.
Einnig opið í gömlu málningarbúðinni,
21. des 12 - 22
22. des 11 - 22
23. des 11 - 23
www.gjugg.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 14:54:32 / addari

Betra er seint en aldrei

Svona þar sem að ég hef aðeins skrifað 10 færslur hérna á þessa síðu síðan í Janúar 2006 og að það sé ennþá fólk að skoða þessa síðu og það að Katrín hefur verið að setja smá pressu á mig með það að skrifa ;D þá ákvað ég að skrifa hér niður nokkur orð.....

 Hefur mikið verið að gerast síðan ég skrifaði síðast og ber þar hæst auðvitað litli gaurinn minn, erum búin að skíra og heitir litli prinsinn Ísak Hrafn. Held hreinlega að hann sé eitt stilltasta barn sem að ég hef heyrt um, gerir ekkert nema að sofa, drekka og svo þess á milli er hann bara brosandi út í loftið, einhver hvíslaði nú að mér að það ætti eftir að breytast þegar hann myndi eldast og byrjaður að hreyfa sig og svona.... allavea ef hann ætti eftir að verða eitthvað líkur pabba sínum ;D

TinyPic image

 

Írskir Dagar voru núna um helgina og var mikið fjör í bænum og er gaman að sjá þegar fólk fer loksins út úr húsunum sínum hérna á Akranesi.... er aldrei nokkur kjaftur niðrí bæ á venjulegum degi.... Er oft að spá í því hvar allir þessu 6000 manns sem búa hérna á Akranesi haldi sig. Líklegt hinsvegar að sjónvarpið sé að halda fólki inni... Þess vegna væri gaman að sjá oftar eitthvað gerast í bænum, og að þegar eitthvað er að gerast þá að fólk fari og taki þátt í því og láti sjá sig svo að einhver nenni að gera eitthvað. Sammála ???

En annars bara gaman að vera mættur aftur í netheima ;D og allir að mæta á ÍA - Víking á morgun á Akranesvelli kl 19:15

TinyPic image

TinyPic image

Þokkalegur Zoolander hérna í gangi hehe

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 16:14:52 / addari

Ólýsanlegt

Vildi bara henda inn smá færslu hérna til að segja ykkur að ég er orðinn pabbi. Katrín fæddi strák kl 12:30 laugardaginn 7.apríl, 17 merkur og 56 cm. Myndardrengur þar á ferð enda hefur hann ekki langt að sækja það :D.

TinyPic image

TinyPic image

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 23:37:59 / addari

Sleikur á almannafæri!!!

Sleikur á almannafæri, þetta er fyrirbæri sem að ég er mjög hrifinn af og hef ég mjög gaman af því að verða vitni af slíkum hlut. Er að reyna að temja mér það að þegar ég sé góðan sleik í gangi á almannafæri að láta sem flesta vita af honum og öskra af öllu afli SLEIKUR Á ALMANNAFÆRI !!! Hvet þá sem geta að taka eins og einn góðan sleik svona af til á almannafæri :lol:

En svona úr öðru í annað, Var fríhelgi núna í fótboltanum og var aðeins kíkt á smá skrall á föstudaginn og var það bara helvíti gaman. Það sem stendur upp úr er, Tóti Cab Driver og Sander Kleinenberg hehe. Gaman að þessu. Getið séð frekari  lýsingu af kvöldinu á síðunni hjá Andra J. er ekki að nenna að þylja þetta upp. Svo var tekið FIFA mót í gær heima hjá Jóni Þór og vann ég auðvitað, enda eru mínir menn í Lyon illviðráðanlegir. Kíkti svo til RVK í dag með Katrínu og Eyju og vorum við bara eitthvað að skoða í Smáralind fleira skemmtilegt, góður chill sunnudagur hér á ferð. Er samt fátt meira pirrandi að vera að skoða í búðir og eiga svo engan pening til þess að versla eitthvað fallegt. Óska eftir peningaframlögum.

Svona talandi um peningaframlög þá væri ekki vitlaust að nota peninginn ykkar í það að kaupa handa mér afmælisgjöf því að það styttist jú óðfluga í tvítugsafmælið. Er ekki búinn að plana neina veislu strax en ég tek við gjöfum þann 20. Febrúar á Einigrund 17 á milli 20:00 og 23:00. Og ef þið ætlið ekki að gefa mér eitthvað almennilegt, svona dót sem ég á ekkert eftir að nota þá vil ég bara frekar fá peninginn. :klikk:

Ætla annars að láta þetta duga í bili og núna "lofa" ég að fara að skrifa aðeins oftar hingað inn :D

Henda inn hérna einum eðalplaylista fyrir ykkur

The Shins - Phantom Limb

Simon & Garfunkel - The Only Living Boy In New York

Mika - Grace Kelly

Clap Your Hands Say Yeah - Satan Said Dance

Pétur Ben - Wine For My Weakness

Johnny Cash - A Boy Named Sue

Incubus - Dig

Bloc Party - Helicopter

 

Image hosting by TinyPic

Náði að spotta einn sleik á almannafæri þegar við vorum útí New York, þorði ekki alveg að taka öskrið á þau vegna hættu á því að verða skotinn þarna úti, Bandaríkjamenn ekki alveg jafn líbó og við hérna á klakanum.

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 11:54:55 / addari

Áfram Ísland

Ísland klárlega að standa sig á HM með því að rífa sig upp af rassgatinu eftir Úkraníu leikinn og vinna bara Evrópumeistarana og svo Afríkumeistarana. Alveg ótrúlegt þjóðarstolt í gangi hérna á Íslandi og allir að missa sig yfir handbolta, er skrýtið þar sem að það fylgjast bara nokkrar hræður með handbolta hérna á Íslandi en virðast allir detta inní fílinginn þegar landsliðið spilar á stórmótunum og er ég einn af þeim.

Mér tókst að slasa mig á mánudaginn, ákvað að sleppa því í einum leikfimitíma að fara niður að lyfta og var með í fótbolta í staðinn, og ekki endaði það vel. Náði að misstíga mig svona skemmtilega og sit ég hérna með 3falda löpp og mætti halda að ég væri kominn með fílaveikina ég er svo mikið bólginn, fékk allavea þau skilaboð frá þjálfaranum að ég myndi aldrei aftur vera með í leikfimi:S hehe þetta var ekki alveg nógu sniðugt verð frá í svona 2 vikur 8|.

Er byrjaður að dl á fullu á netinu eftir að ég náði mér í eitthvað forrit og er ég bara búinn að vera hooked á þessu alla vikuna, náði mér í heroes ;D sterkur leikur þar á ferð, snilldarþættir. Katrín ekki alveg nógu sátt með þá athygli sem að ég er að sýna tölvunni hennar geri lítið annað en að hlusta á tónlist núna og horfa á Heroes. Kate reyndar líka alveg hooked á Heroes þannig að þetta er í lagi :haha:

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

Einhver svipur ? :)

Sufjan Stevens - Chicago


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 02:01:32 / addari

2007

Vildi bara óska öllum sem ég þekki Gleðilegs nýs árs..:$

Kem með færslur inn svona aðeins reglulega á nýja árinu

 

Image hosting by TinyPic

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 23:08:09 / addari

Fór út að grilla og þá kom einhver að rífa kjaft..... Skítapakk

Hehe er algjört snilldarlag með Dr. Spock sem nefnist skítapakk... mæli eindregið með því afar skemmtilegur texti og tilheyrandi. Annars bara allt gott að frétta af mér er voðalega lítið heima eins og vanalega æfingar núna bara frá hálf 6 til 8 hálf 9 þannig að ég er bara heima eftir 9 á kvöldin og til 7 um morguninn :D hressilegt...

Er búinn að vera að spá svolítið í einu, munið væntanlega eftir því að einhvertíma í síðustu viku þá var í fréttablaðinu og alls staðar í útvarpinu, er by the way kominn mikið inní útvarpsmenninguna þessa dagana í vinnunni og þá var alltaf verið að tala um vin okkar allra hann Friðrik Ómar og að hann hefði sko tekið til sinna ráða og snúið vel ölvaðan mann sem var ekki alveg sáttur með atriðið hjá honum og þarna fyrrverandi Ísland í dag kellingunni sem neitaði að taka viðtal við Ron Jeremy :$ hehe hvaða vitleysa var það... en já gaurinn ætlaði bara að vaða í kellinguna og eitthvað og Frikki Ó fleygði honum bara í jörðina í einni snarpri hreyfingu menn voru víst að líka honum við Seagal á góðum degi... En já allt gott og blessað með það og fulli gaurinn náttúrulega alveg búinn að skíta upp á bak með því að láta Frikka fleygja sér í jörðina... en það sem ég ætlaði nú að segja um þetta allt saman er að ég held að þetta hafi bara verið sviðsett, sko í fyrsta lagi er Friðrik Ómar ekkert að fara snúa eitt né neitt niður og svo í öðru lagi fannst mér það frekar grunsamlegt að hann ákvað allt í einu að skella plötunni sinni í sölu í sömu viku... þannig að Frikki vinur minn snéri engan niður... þetta var bara eitthvað publicity stunt til að auglýsa plötuna.

Er búinn að vera soldið að spá mikið þessa dagana því að maður er að reyna að láta tímann líða sem hraðast í vinnunni þá þarna var ég að hlusta á heyrnarhlífar sem eru með útvarpi í !!! já þið lásuð rétt heyrnarhlífar með útvarpi, held að þetta sé bara besta uppfinning allra tíma en já ég var að hlusta á FM og þarna er lag alltaf í spilun þar veit ekki með hvaða söngkonu þarna I wish I was a punk rocker, er hundleiðinlegt alveg með eindæmum en ég hlusta alltaf á það og er búinn að vera að spá mikið í textanum og svona og er soldið mikið til í þessu sem stelpan er að segja sko... væri ekki leiðinlegt að prófa að vera uppi þarna þegar það var eitthvað almennilegt að gerast og alltaf eitthvað nýtt endalaust að koma eins og hvernig ætli hafi verið þegar Bob Dylan kom fyrst og allt þannig, langar pínu að lifa í gamla daga sko þegar mamma og pabbi voru ennþá í gallabuxum og sá pakki sko... svona kæruleysið soldið ríkjandi, myndi vel fíla mig í þeim pakka sko.... veit samt ekki hvort að maður myndi fórna því sem að maður hefur núna fyrir gömlu dagana maður hefur það svo fáranlega gott í dag ef maður spáir í því....en finnst fúlt að fá ekki að prófa :) myndi pottþétt velja tímavél ef að ég gæti óskað mér hvað sem er.... væri magnað...

Hot Chip - Boy From School

RJD2 - Ghostwriter

Pixies - Monkey Gone To Heaven

Mugison - Go Blind

Kings Of Leon - Rememo

Razorlight - America


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 22:47:40 / addari

Addi Smarties

Sæl veriði :lol:

Sit hér uppí sófa í rólegheitunum og ekkert í sjónvarpinu þannig að ég ákvað að henda inn færslu... Búið að vera nóg að gera hjá mér núna undanfarið og er það bara ekkert nema gott, er kominn með vinnu hjá Smellinn sem er bara mjög fínt er bara á trésmíðaverkstæðinu í góðum fíling með Nonna Smarties eins og Heimir vill meina að hann heiti hehe... væri alveg klárlega til í að vera kallaður Addi Smarties 8)

En já Dagarnir núna eru allir bara eins.. vakna korter í 7 fara í vinnuna og svo heim kl 5 og beint á æfingu hálf 6 og kominn heim svona 8 vanalega gaman gaman,

Var bara helvíti gaman um helgina... Ég var bara í góðum fíling á föstudagskvöldið og ætlaði bara að vera rólegur af því að ég hélt að það væri æfing morguninn eftir hringdi í Andra um kvöldmatarleytið til að vera viss hvenær æfingin byrjaði... neinei var ekki bara skellt í eitt helgarfrí og Addi Smarties bara ekkert látinn vita 8| , hringdu þá Unnzi og Daríus í mig og ég ákvað að skella mér á ball eftir að Hafþór (þið vitið gaurinn þarna í fréttablaðinu) hringdi í mig og sagði að hann væri bara með miða fyrir mig, er sko ekkert hægt lengur að taka skyndiákvörðun um að fara á ball lengur er ekki nógu góð þróun en virðist vera nauðsynleg því að fólk kann bara sumt ekki að haga sér :klikk: . En já rættist svona líka helvíti vel úr þessu balli ég Darri og Habbó vorum eins og óðir menn á dansgólfinu þarna en Unnzi hann var nú bara í gæslu eins og einhver fáráður...

Heyrðu á Laugardagskvöldið var haldið í 19 ára afmælisveislu hjá Marinó nokkrum Árnasyni og var það hin mesta skemmtun borðuðum geggjað góðan mat sem Doddi Gylfa kokkaði fyrir okkur og svo hendi Salzi bara í eitt stykki eftirrétt sem innihélt fleiri kaloríur heldur en Gaui Litli þegar hann var uppá sitt besta 8| ,

Svo var það sunnudagurinn og gat hann nú varla byrjað betur, maður vaknaði bara beint í Man Utd - Liverpool og er óhætt að segja að þetta hafi verið leikur kattarinnar að músinni þvílíkir yfirburðir hjá United og samt vorum við með Fletcher inná :haha: Verð bara að segja það þótt að hann einhver vinur okkar hjá Charlton sé ennþá að hringsnúast eftir að hann Darren okkar fíflaði hann þá vil ég bara ekki sjá hann í þessu liði og ekki ætla ég nú að fara fagrari orðum um Alan fokkinn Smith, einn alleiðinlegasti leikmaður deildarinnar þegar hann var hjá Leeds og neinei ákvað ekki bara Ferguson kvikindið að kaupa þennann djöful og nota hann á miðjunni í þokkabót !!! vil þessa leikmenn burt ekki seinna en núna.... læt þetta vera lokaorðin set hérna inn playlista vikunnar og nokkrar myndir fyrir ykkur Ciao :o

Playlisti Vikunnar

Arctic Monkeys - Fake Tales Of San Fransisco

Wolfmother - Mind's Eye

Bob Dylan - Tangled Up In Blue

Radiohead - Blackstar

Violent Femmes - Add It Up

Wolfmother - Love Train

Justin Timberlake - Sexy Back

Razorlight - In The Morning

Gomez - Make No Sound

The Strokes - On The Other Side


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 03:42:07 / addari

New York Baby !!! I'm Back

Ákvað að henda inn nokkrum orðum hérna fyrst að maður er nú erlendis að slappa aðeins af hjá Ernu og family.

Er búið að vera alveg frábært hérna úti og eru ég og Katrín búin að gera alveg slatta hérna og þá er það aðallega að versla ;D sem er náttúrulega ekkert nema gott. Erum búin að fara nokkrum sinnum niðrí borg að versla og að skoða empire state og times square og svona. Var reyndar alveg hræðilegt þegar að við vorum að fara i empire state, var alveg mjög heitt úti allavega 20 stiga hiti og geðveikur raki i loftinu og ég og Katrín ákváðum að kíkja bara í empire state, héldum að það tæki bara smá stund, en nei nei var þetta ekki bara hver röðin á eftir annarri og vorum við án grins í klukkutíma í röð til að vera þarna uppi í mesta lagi korter. Var reyndar alveg mjög svalt að sjá yfir borgina þarna uppi og tókum við einhverjar myndir þarna uppi og erum við reyndar bara búin að vera mjög dugleg að taka myndir og er ég búinn að setja eitthvað af myndum inná nýju myndasíðuna en urlið á henni er hérna fyrir neðan og svo er tengill á hana hérna á síðunni undir ÉG dæminu. ;D

Komum heim á aðfaranótt sunnudags og rétt missi ég því af lokahófinu hjá KSÍ sem er frekar fúlt en það verður bara að hafa það, treysti alveg strákunum til þess að gera allt vitlaust þarna og taka við verðlaununum fyrir mig :D

Ætla ekki að hafa þetta lengra núna en ég hef semsagt ákveðið að byrja aftur að blogga og er ég búinn að setja helling af nýju drasli inná síðuna t.d. svona nýtt um mig dæmi og nokkra nýja tengla og nýja skoðanakönnun og nýtt lúkk og alles.

En þetta er urlið á myndasíðuna www.myalbum.is/timmy 

Image hosting by TinyPicImage hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

Lag Dagsins: Sonic Youth - Incinirate


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 00:42:28 / addari

Það hlaut að koma að því :D

Ákvað þar sem að maður er í skemmtanabanni og má ekkert hafa gaman að dunda mér við að skrifa hér nokkur orð.... Ekki það að ég hafi ekki haft nógan tíma núna upp á síðkastið því að ég ætti að vera með fullhlaðin batterý eins og einhver myndi orða það :D En er allavea á lífi.... Það er skítakuldi úti og það er að koma júní mér finnst það ekkert sniðugt ...

Dikta - Losing Every Day

Arcade Fire - Rebellion (Lies)

Gnarls Barkley - Crasy

Yeah Yeah Yeah's - Gold Lion

Hot Chip - Over And Over

The Strokes - Heart In A Cage

Wolfmother - Dimension

Jeff Who - Barfly

Image hosting by TinyPic

Fór í klippingu.... Hef ekki verið með svona lítið hár síðan í 3 bekk .... Er sáttur með það... það fýkur allt af seinna í vikunni.. Hendi mynd af því inn fyrir ykkur hérna á næstunni ..


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 15:23:46 / addari

Klukkið mit klukk...

Þetta alltaf jafn pirrandi.... !!! Var búin að skrifa klukkshittið og svo slokknaði bara á tölvunni og ég er ekki að nenna að skrifa þetta upp aftur... Þannig að bara að láta vita af mér er ekki dauður eins og mætti kannski halda...

En allavea eru 24 og Nip/tuck alveg að gera sig þessa dagana... Ekki alveg nógu sáttur með fyrstu þættina af Lost en lítill fugl hvíslaði að mér að þetta ætti eftir að batna.... Og My Name Is Earl eru snilldarþættir,,

Var að uppgötva Oasis aftur og fann marga gamla slagara með þeim... mæli með þessu...

Var að heyra að það hefðu bara mætt 6 manns á Valentínusarballið fræga i gær... ballið var blásið af í hálfleik... voru fleiri í gæslu heldur en sem borguðu sig inn....

Hver man ekki eftir Kool Aid.... vil fá að sjá það aftur...

Lag Dagsins: Oasis - Champagne Supernova

 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 12:44:32 / addari

Smá Tilbreyting Í Skammdeginu :D

Já góðann og blessaðan daginn :D ákvað að henda inn hérna einni færslu og henda inn myndum af smá prakkarastriki sem að ég og Andri framkvæmdum í skólanum í morgunn hehehehe..... Ákváðum yfir þungum stærðfræðidæmum í fyrsta tíma í morgunn að nýta okkur þennan leiðindarsnjó í eitthvað uppbyggilegt, :haha: Þannig að við ákváðum að kaffæra bílinn hjá honum Högna góðvini okkar .. :D og hérna kemur aftraksturinn.....

 

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

 

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic

Þegar við vorum akkurat að klára verkið hafði einhver klagað í Högna og hann kom út og böstaði okkur þannig að ég notaði tækifærið og smellti einni mynd af honum hliðiná bílnum sínum hehehehe.....

Lag Dagsins: Pink Floyd  - Wish You Where Here


» 92 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan